Eiríkur Vilhelm Sigurðarson

Eiríkur Vilhelm Sigurðarson

Á-listi  |  5. sæti | Sveitarstjóraefni

Klárum málin

Ég horfi fullur tilhlökkunar til þess að leggja mitt af mörkum í þeim verkefnum sem bíða sveitarfélagsins okkar. Við höfum hingað til verið heppin með fólkið sem gefið hefur kost á sér til starfa og mannvalið á nýju framboðslistunum lofar svo sannarlega góðu um framhaldið.

Ég hafði strax frá unga aldri metnað fyrir því að klára þau verkefni sem mér voru falin – eða að minnsta kosti þau sem ég tók að mér. Meistaranám mitt í verkefnastjórnun var rökrétt framhald af þeim metnaði. Grein af þeim sama meiði er áhugi minn á því að láta til mín taka fyrir sveitarfélagið.

Áherslur mínar eiga mikla samleið með Á-listanum og á þeim vettvangi mun ég leggja sérstaka áherslu á að þau mál sem ákveðið verður að ráðast í verði kláruð í stað þess að lognast út af án þess að um það sé tekin ákvörðun. Það að klára málin er eitt af grundvallaratriðunum sem mér voru kennd og að mínu viti er full ástæða til þess að við höfum þá gullnu reglu í heiðri við stjórnvölinn í okkar góða sveitarfélagi.

Um mig

Eftir ríflega áratugslanga búsetu lít ég á mig sem nokkuð rótgróinn í Rangárþingi enda þótt ég sé fæddur og uppalin í Vík í Mýrdal. Ósvikin „átthagaást“ eiginkonu minnar, hefur dýpkað þessar rætur mínar og í dag þykir mér ekki bara vænt um „heimahagana“ heldur finnst mér ég þekkja þá býsna vel.

Ég er kvæntur Heklu Katharínu Kristinsdóttur hrossaræktanda og reiðkennara og við búum í Árbæjarhjáleigu 2a ásamt þremur börnum okkar sem eru á leik- og grunnskólaaldri. Við erum því eðlilega upptekin af þjónustu sveitarfélagsins við ungt fjölskyldufólk.

Okkur er ljóst að án farsællar verðmætasköpunar atvinnulífsins getur blómleg byggð fyrir unga og aldna aldrei þrifist. Mér hefur alla tíð fallið betur að gera en að kvarta og þess vegna gef ég nú kost á mér til starfa á vettvangi sveitarstjórnar. Mig langar að koma hlutum í verk.

Ég útskrifaðist sem ferðamálafræðingur frá Háskólanum á Hólum og lauk síðar meistaranámi í verkefnastjórnun (MPM) við Háskólann í Reykjavík. Ég stýrði Kötlusetri í Vík í Mýrdal í kröftugri uppbyggingu þess áður en ég tók við starfi markaðs- og kynningarfulltrúa í Rangárþingi ytra árið 2015. Allar götur síðan hef ég sinnt margvíslegum störfum og verkefnum í sveitarfélaginu.

Ég er formaður Hestamannafélagsins Geysis og sat í framkvæmdastjórn Landsmóts hestamanna á Rangárbökkum árið 2022. Ég hef frá árinu 2023 stýrt glerverksmiðju Samverks á Hellu og svo er ég auðvitað afar stoltur af því að hafa verið framkvæmdastjóri hinnar eftirminnilegu Njáluvöku á Hellu og Hvolsvelli sl. sumar sem hátt í tíu þúsund manns sóttu heim.

„Ég gef kost á mér vegna þess að ég sé ýmis tækifæri sveitarfélagsins til áframhaldandi sóknar, jafnt í bættri þjónustu við íbúana sem og sterkari umgjörð fyrir atvinnulífið. Ég er sannfærður um að menntun mín og reynsla af atvinnurekstri annars vegar og hins vegar þekking mín á aðstæðum og þörfum ungra fjölskyldna geti orðið mér dýrmætt veganesti í brýnum framfaraskrefum í þessu góða samfélagi okkar. Ég sé engar ógnanir – bara tækifæri. Þess vegna hlakka ég til.

Á – Listinn

Á-listinn er hreyfing áhugafólks um sveitarstjórnarmál, íbúalýðræði og fjölskylduvænt samfélag. Á-listinn stendur fyrir ábyrga fjármálastjórn, aukin lífsgæði fyrir alla aldurshópa, fjölbreytt atvinnulíf, sterkar menntastofnanir og opna stjórnsýslu. Á-listinn stuðlar að innviðauppbyggingu í þágu öryggis og hagkvæmni fyrir alla íbúa, jafnt í þéttbýli sem dreifbýli. Á-listinn í Rangárþingi ytra er málefnamiðuð stjórnmálahreyfing – óháð stjórnmálaflokkum á landsvísu.

Framboðslisti Á-listans 2026

  • 1
    Eggert Valur Guðmundsson, sjálfstætt starfandi og oddviti.
  • 2
    Margrét Harpa Guðsteinsdóttir, bóndi og sveitarstjórnarfulltrúi.
  • 3
    Erla Sigríður Sigurðardóttir, sjúkraflutningamaður með stjórnunarmenntun.
  • 4
    Viðar Már Þorsteinsson, tæknifulltrúi og sveitarstjórnarfulltrúi.
  • 5
    Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, verksmiðjustjóri og sveitarstjóraefni.
  • 6
    Guðbjörg Snorradóttir, viðurkenndur bókari og þroskaþjálfi.
  • 7
    Þórunn Dís Þórunnardóttir, útungunarstjóri og sveitarstjórnarfulltrúi.
  • 8
    Gunnar Aron Ólason, upplýsingafulltrúi.
  • 9
    Anna Sóley Kjeld, í fæðingarorlofi.
  • 10
    Berglind Kristinsdóttir, verslunareigandi.
  • 11
    Daníel Freyr Steinarsson, verktaki og slökkviliðsmaður
  • 12
    Auður Erla Logadóttir, kennari og knattspyrnuþjálfari.
  • 13
    Gabríel Snær Ólafsson, pípulagninganemi.
  • 14
    Pálína S. Kristinsdóttir, kaupsýslukona.

Sveitarstjórinn

Það felst mikil ábyrgð í starfi sveitarstjóra. Það er fjölbreytt og krefjandi. Jafnvel áskorun á hverjum einasta degi. Ég er óhræddur við að takast á við ný verkefni og leggja mig fram um að afla mér þeirrar þekkingar sem þarf hverju sinni. Málefni sveitarstjórnar eru fjölbreytt og krefjast bæði yfirsýnar og góðrar stjórnsýslu.

Sveitarstjóri framkvæmir þau verkefni sem honum eru falin og stýrir þeim verkefnum sem kjörnir fulltrúar ákveða að ráðast í. Fyrir mig er erfitt að finna betri nýtingu á menntun minni í verkefnastjórnun en einmitt í slíku starfi.

Ég á samleið með áherslum Á-listans og mun vinna með félögum mínum þar af heilindum. Sem sveitarstjóri yrði ég jafnframt í því hlutverki að vera ekki aðeins starfsmaður kjörinna fulltrúa heldur einnig í þjónustu allra íbúa Rangárþings ytra.

Aðalatriðin snúast um góð samskipti og ráðdeildarsemi. Ég mun því leggja mikla áherslu á samtal við íbúana – að hlusta og skilja. Góður sveitarstjóri þarf einnig að fara vel með sameiginlega sjóði íbúanna, og þar skiptir vönduð verkefnastjórnun miklu máli.

Þess vegna gef ég ekki aðeins kost á mér til starfa í sveitarstjórn fyrir Á-listann heldur einnig sem sveitarstjóri Rangárþings ytra og heiti því að gefa mig allan í það verkefni hljóti framboðið stuðning í komandi kosningum.

Mig langar að heyra frá þér!

Ef þú hefur spurningar eða vilt ræða einstök framfaramál tengd sveitarfélaginu þá getur þú skilið eftir skilaboð hér á síðunni og ég mun hafa samband.